Dæmisaga um hveiti og illgresi
24 Hann sagði þeim einnig þessa dæmisögu: „Himnaríki er líkt bónda sem sáði góðu sæði í akur sinn. 25 Nótt eina, meðan hann svaf, kom óvinur hans og sáði illgresi meðal hveitisins. 26 Þegar hveitið kom upp, kom illgresið einnig upp.
27 Vinnumenn bóndans komu til hans og sögðu: „Húsbóndi! Akurinn, sem þú sáðir góða hveitinu í, er fullur af illgresi." 28 „Því hefur einhver óvinur sáð," svaraði bóndinn. „Eigum við að reyta illgresið?" spurðu þeir. 29 „Nei," svaraði hann, „því þá gætuð þið einnig slitið hveitið upp. 30 Látið hvort tveggja vaxa til uppskerutímans, og þá mun ég segja kornskurðarmönnunum að skilja illgresið frá og brenna það, en setja hveitið í hlöðuna"."