36 Jesús yfirgaf nú fólkið og gekk inn í hús. Lærisveinar hans báðu hann þá að útskýra líkinguna um illgresið og hveitið. 37 „Það skal ég gera," sagði hann. „Ég er bóndinn sem sáir góða sæðinu. 38 Akurinn er allur heimurinn. Góða sæðið eru börn guðsríkisins. Illgresið er fólk sem fylgir óvininum. 39 Óvinurinn, sem sáði illgresinu meðal hveitisins, er Satan. Uppskerutíminn er dómsdagur. Kornskurðarmennirnir eru englar. 40 Eins og illgresi er brennt, eins mun fara við endi veraldar. 41 Ég mun senda engla mína til að skilja frá alla vonda menn og allt sem veldur synd, 42 varpa á bál og brenna. Þar mun verða grátið og kveinað. 43 En börn Guðs munu ljóma eins og sólin í ríki föðurins. Takið vel eftir þessu!"
Publicidade
Mateus 13
Dæmisagan um illgresið og hveitið útskýrð