Dæmisagan um netið
47,48 „Guðsríki má enn líkja við fiskimann. Hann kastar neti út í vatnið og veiðir í það fisk af ýmsum tegundum, bæði verðmætum og verðlausum. Þegar netið er orðið fullt dregur hann það á land og safnar ætu fiskunum saman, en fleygir hinum. 49 Þannig fer líka á dómsdegi. Englar munu koma, skilja hina óguðlegu frá hinum trúuðu og 50 kasta hinum óguðlegu á bálið. Þar verður grátið og kveinað.