15 Um kvöldið komu lærisveinarnir til hans og sögðu: „Það er löngu kominn kvöldverðartími, en hér í óbyggðinni er engan mat að fá. Sendu fólkið burt, svo að það geti farið til þorpanna og keypt sér mat." 16 „Það er óþarfi," svaraði Jesús, „þið skuluð gefa því að borða!" 17 „Ha, við!" hrópuðu þeir. „Við eigum aðeins fimm brauð og tvo fiska."
18 „Komið með það hingað," sagði Jesús, 19 og því næst sagði hann fólkinu að setjast niður í grasið. Hann tók brauðin fimm og fiskana, horfði til himins og þakkaði Guði fyrir matinn. Þegar hann hafði brotið brauðin í sundur, rétti hann lærisveinunum þau og þeir skiptu þeim meðal fólksins. 20 Allir urðu mettir! Eftir á fylltu þeir tólf körfur með brauðmolum sem af gengu! 21 (Um 5.000 karlmenn voru þarna þennan dag, auk kvenna og barna.)