29 „Já, gerðu það. Komdu!" svaraði Jesús. Pétur steig þá yfir borðstokkinn og gekk á vatninu í átt til Jesú. 30 En þegar Pétur sá öldurótið varð hann skelkaður og tók að sökkva. „Jesús, bjargaðu mér!" hrópaði hann. 31 Jesús rétti honum samstundis höndina og dró hann upp. „Þú hefur litla trú," sagði Jesús. „Af hverju efaðist þú?"