3 „En hvers vegna eru þessar siðvenjur ykkar í andstöðu við boðorð Guðs?" spurði Jesús á móti. 4 „Eitt af boðorðum Guðs er þannig: „Heiðra skaltu föður þinn og móður, hver sá sem formælir foreldrum sínum er dauðasekur." 5,6 Þið segið hins vegar: „Þótt foreldrar þínir þarfnist hjálpar, máttu gefa musterinu það fé sem þú hefur lagt til hliðar handa þeim." Með þessu mannaboðorði ónýtið þið þá skipun Guðs að menn heiðri og annist foreldra sína.