Fjórar þúsundir fá að borða
32 Þá kallaði Jesús á lærisveina sína og sagði: „Ég finn til með þessu fólki. Það hefur verið hér í þrjá daga samfleytt, og nú er það orðið matarlaust. Ég vil ekki senda það frá mér þannig á sig komið, því þá örmagnast það á leiðinni heim." 33 „Hvernig eigum við að útvega mat hér í óbyggðinni handa öllum þessum fjölda?" spurðu lærisveinarnir. 34 „Hvað tókuð þið mikið með ykkur?" spurði Jesús. „Sjö brauð og nokkra smáfiska," svöruðu þeir. 35 Jesús bauð þá fólkinu að setjast niður. 36 Síðan tók hann brauðin og fiskana, og þakkaði Guði. Að því búnu skipti hann matnum í skammta, sem lærisveinarnir báru til fólksins. 37,38 Allir fengu nóg, 4.000 karlmenn auk kvenna og barna! Þegar leifunum hafði verið safnað saman, fylltu þær sjö körfur!