Súrdeig farísea og saddúkea
5 Þegar lærisveinarnir komu yfir vatnið, tóku þeir eftir því að þeir höfðu gleymt að hafa með sér nesti. 6 „Varið ykkur!" sagði Jesús, „varið ykkur á súrdeigi faríseanna og saddúkeanna." 7 Þeir héldu að hann segði þetta af því að þeir höfðu gleymt að taka með sér brauð. 8 Jesús vissi hvað þeir hugsuðu og bætti við: „Lítil er trú ykkar! Af hverju hafið þið áhyggjur af mat? 9 Hvar er skilningur ykkar? Munið þið ekki eftir brauðunum fimm sem nægðu handa fimm þúsund manns, og öllu því sem gekk af? 10 Og munið þið ekki heldur eftir þúsundunum fjórum og öllu sem þá varð afgangs? 11 Hvernig datt ykkur í hug að ég væri að tala um mat? En ég endurtek: Varið ykkur á súrdeigi faríseanna og saddúkeanna!"
12 Þá skildu þeir loks að með „súrdeiginu" átti hann við varasamar kenningar farísea og saddúkea.