Publicidade

Mateus 17

Ummyndun Jesú

1 Sex dögum síðar tók Jesús þá Pétur, Jakob og Jóhannes með sér upp á hátt fjall. 2 Þegar þangað kom sáu þeir útlit Jesú breyttist, andlit hans tók ljóma sem sólin og klæðin urðu skínandi björt. 3 Allt í einu birtust Móse og Elía og fóru tala við hann. 4 Þá sagði Pétur: Drottinn, hér er gott vera! Ef þú vilt, þá skal ég gera hér þrjú skýli, eitt handa þér, annað handa Móse og það þriðja handa Elía." 5 En um leið og hann sagði þetta kom bjart ský yfir þá og úr því heyrðu þeir rödd sem sagði: Þessi er minn elskaði sonur, sem ég hef velþóknun á. Hlustið á hann!" 6 Lærisveinarnir lutu til jarðar í óttablandinni lotningu. 7 Jesús kom til þeirra, snerti þá og sagði: Rísið upp og verið óhræddir." 8 Þegar þeir litu upp sáu þér Jesú einan. 9 Á leiðinni niður fjallið bað Jesús þá segja engum frá því, sem þeir höfðu séð, fyrr en hann væri risinn upp frá dauðum.

10 Þá spurðu þeir hann: Hvers vegna segja leiðtogar þjóðar okkar Elía verði koma á undan Kristi?" 11 Þetta er rétt hjá þeim," svaraði Jesús. Elía verður koma og færa allt í lag. 12 Hann er reyndar búinn koma, en menn þekktu hann ekki og margir fóru illa með hann. Ég, Kristur, mun einnig verða þjást af þeirra völdum." 13 Þá skildu lærisveinarnir hann átti við Jóhannes skírara.

Drengur læknaður

14 Þegar þeir komu niður af fjallinu beið þeirra mikill mannfjöldi. Maður nokkur kom þá hlaupandi, kraup fótum Jesú og sagði: 15 Herra miskunnaðu syni mínum. Hann er geðveikur og þungt haldinn. Hann dettur oft í eld og vatn. 16 Ég fór með hann til lærisveina þinna, en þeir gátu ekki læknað hann." 17 Æ, þið efagjörnu og rangsnúnu menn!" sagði Jesús. Hversu lengi á ég umbera ykkur? Komið með drenginn til mín." 18 Jesús ávítaði illa andann, sem var í drengnum, svo hann fór úr honum og drengurinn varð heilbrigður á samri stundu.

19 Eftir á spurðu lærisveinarnir Jesú hvers vegna þeir hefðu ekki getað rekið illa andann út. 20 Þið hafið svo litla trú," svaraði Jesús. Ef þið ættuð trú, þó ekki væri hún stærri en agnarlítið sinnepsfræ, þá gætuð þið sagt við þetta fjall: Færðu þig!" og það mundi hlýða ykkur. Ykkur yrði enginn hlutur um megn. 21 En illur andi eins og þessi fer ekki út fyrr en þið hafið beðið og fastað."

Jesús segir aftur fyrir um dauða sinn og upprisu

22,23 Dag einn meðan þeir voru enn í Galíleu sagði Jesús við lærisveinana: Ég mun verða svikinn í hendur þeirra sem vald hafa til lífláta mig, en þrem dögum liðnum mun ég rísa upp." Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta urðu þeir hryggir og skelfdir.

Pétur og meistarinn borga skatt

24 Þegar þeir komu til Kapernaum komu menn, sem innheimtu musterisskattinn, til Péturs og spurðu: Greiðir meistari þinn ekki skatta?" 25 Auðvitað gerir hann það," svaraði Pétur. Síðan fór hann inn í húsið til ræða málið við Jesú, en Jesús varð fyrri til og spurði: Pétur, hvort heldur þú konungar skattleggi syni sína eða útlendingana, sem þeir undiroka?" 26,27 Útlendingana," svaraði Pétur. Fyrst svo er," sagði Jesús, þá eru synirnir skattlausir! En við skulum ekki hneyksla þá. Farðu niður vatninu og kastaðu út færi. Opnaðu síðan munninn á fyrsta fiskinum sem þú færð og þar muntu finna pening. Taktu hann og greiddu fyrir okkur báða."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-