Hver er mestur
1 Rétt í þessu komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann hver þeirra yrði mestur í ríki himnanna. 2 Jesús kallaði þá á lítið barn sem stóð þar hjá 3 og sagði: „Ef þið snúið ykkur ekki frá syndinni, til Guðs, og verðið eins og börnin, munuð þið aldrei komast inn í himnaríki. 4 Sá sem er auðmjúkur, eins og þetta litla barn, verður mestur í himnaríki.