Hver er mestur
1 Rétt í þessu komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann hver þeirra yrði mestur í ríki himnanna. 2 Jesús kallaði þá á lítið barn sem stóð þar hjá 3 og sagði: „Ef þið snúið ykkur ekki frá syndinni, til Guðs, og verðið eins og börnin, munuð þið aldrei komast inn í himnaríki. 4 Sá sem er auðmjúkur, eins og þetta litla barn, verður mestur í himnaríki. 5 Ef þið, sem lærisveinar mínir, takið vel á móti barni eins og þessu, þá takið þið á móti mér.
Dæmisagan um týnda sauðinn
10 Gætið þess að fyrirlíta ekki neitt þessara barna. Ég segi ykkur satt: Englar þeirra eru í nánum tengslum við föður minn á himnum,