Publicidade

Mateus 18

Hver er mestur

1 Rétt í þessu komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann hver þeirra yrði mestur í ríki himnanna. 2 Jesús kallaði þá á lítið barn sem stóð þar hjá 3 og sagði: Ef þið snúið ykkur ekki frá syndinni, til Guðs, og verðið eins og börnin, munuð þið aldrei komast inn í himnaríki. 4 sem er auðmjúkur, eins og þetta litla barn, verður mestur í himnaríki. 5 Ef þið, sem lærisveinar mínir, takið vel á móti barni eins og þessu, þá takið þið á móti mér.

Jesús varar við hneykslunum

6 En snúi eitthvert þessara barna, sem á mig trúa, við mér baki ykkar vegna, þá væri þeim manni betra láta kasta sér í hafið með stein bundinn um háls sér. 7 Miklar hörmungar bíða þessa heims vegna illsku hans. Við komumst reyndar ekki hjá því verða fyrir freistingum, en vei þeim manni sem freistingunum veldur. 8 Ef hönd þín eða fótur kemur þér til syndga, er betra skera liminn af, kasta honum burt og koma bæklaður til himins, en hafa bæði hendur og fætur, og lenda í helvíti. 9 Ef auga þitt fær þig til syndga, skaltu stinga það úr og fleygja því. Betra er fyrir þig til himna eineygður, en fara alsjáandi til helvítis.

Dæmisagan um týnda sauðinn

10 Gætið þess fyrirlíta ekki neitt þessara barna. Ég segi ykkur satt: Englar þeirra eru í nánum tengslum við föður minn á himnum, 11 og ég, Kristur, kom til þess frelsa þau sem týnd eru. 12 Hvað gerir sem á hundrað sauði ef einn þeirra villist? Skilur hann ekki hina níutíu og níu eftir og fer leita þess sem týndist? 13 Ef hann finnur hann, gleðst hann meira vegna hans en hinna níutíu og níu sem eru öruggir heima. 14 Á sama hátt vill faðir minn ekki eitt einasta þessara barna glatist.

Um syndugan meðbróður

15 Ef einhver í söfnuðinum syndgar, skaltu fara til hans og ræða við hann einslega um mistök hans. Ef hann hlustar og játar sekt sína, hefur þú bjargað honum. 16 En ef hann lætur sér ekki segjast við orð þín, skaltu fara til hans á og með þér einn eða tvo til viðbótar til staðfesta mál þitt. 17 Ef honum verður ekki þokað þrátt fyrir það, skaltu láta taka málið upp í söfnuðinum. Ef úrskurður safnaðarins verður þér í vil, en bróðir þinn vill ekki beygja sig fyrir honum, skal honum vísað úr söfnuðinum. 18 Ég segi ykkur hér með: Hvað sem þið bindið á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þið leysið á jörðu, verður leyst á himnum.

19 Ég segi ykkur einnig verði tveir ykkar sammála um biðja einhvers, mun faðir minn á himnum veita ykkur það. 20 Því hvar sem tveir eða þrír eru samankomnir mín vegna, er ég mitt á meðal þeirra."

Dæmisagan um miskunnarlausa þrjótinn

21 Þá kom Pétur til hans og spurði: Herra; hve oft á ég fyrirgefa þeim sem syndgar gegn mér? Sjö sinnum?"

22 Nei, sjötíu sinnum sjö, endalaust!" svaraði Jesús. 23 Himnaríki líkja við konung, sem ákvað gera upp við þá sem skulduðu honum. 24 Meðan á uppgjörinu stóð, var komið með mann sem skuldaði honum margar milljónir. 25 Hann gat ekki borgað, og þá skipaði konungurinn svo fyrir hann, kona hans og börn skyldu seld, ásamt öllum eigum hans, til þess skuldin yrði greidd.

26 Þá varpaði maðurinn sér í gólfið við fætur konungsins og sagði: Ó, herra minn, miskunnaðu mér og ég mun borga þér alla skuldina!"

27 Þá kenndi konungurinn í brjósti um hann og gaf honum upp alla skuldina!

28 Þegar þessi maður kom út frá konunginum, hitti hann félaga sinn sem skuldaði honum smáræði. Hann greip um kverkar honum og skipaði honum greiða alla skuldina tafarlaust. 29 Maðurinn kraup þá við fætur hans og grátbað hann: Veittu mér dálítinn frest og ég mun greiða þér það sem ég skulda."

30 En hinn vildi ekki bíða og lét handtaka skuldunaut sinn og varpa honum í fangelsi, þar varð hann dúsa uns skuldin var fullu greidd.

31 Samstarfsmönnum þeirra brá í brún og þeir fóru til konungsins og sögðu honum hvað gerst hafði. 32 Konungurinn lét þá kalla til sín manninn sem hann hafði gefið upp skuldina og sagði: Miskunnarlausi þrjótur! Ég gaf þér upp milljóna skuld vegna þess þú baðst mig um það. 33 Átt þú ekki vera miskunnsamur við aðra eins og ég var miskunnsamur við þig?"

34 Konungurinn varð reiður og sendi manninn til böðlanna sem skyldu gæta hans uns skuldin yrði fullu greidd. 35 Þannig mun faðir minn á himnum einnig fara við ykkur, ef þið fyrirgefið ekki bræðrum ykkar af heilum hug."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-