Um syndugan meðbróður
15 Ef einhver í söfnuðinum syndgar, skaltu fara til hans og ræða við hann einslega um mistök hans. Ef hann hlustar og játar sekt sína, hefur þú bjargað honum. 16 En ef hann lætur sér ekki segjast við orð þín, skaltu fara til hans á ný og fá með þér einn eða tvo til viðbótar til að staðfesta mál þitt. 17 Ef honum verður ekki þokað þrátt fyrir það, skaltu láta taka málið upp í söfnuðinum. Ef úrskurður safnaðarins verður þér í vil, en bróðir þinn vill ekki beygja sig fyrir honum, skal honum vísað úr söfnuðinum.