Pular para o conteúdo
Publicidade

Mateus 18

Um syndugan meðbróður

15 Ef einhver í söfnuðinum syndgar, skaltu fara til hans og ræða við hann einslega um mistök hans. Ef hann hlustar og játar sekt sína, hefur þú bjargað honum. 16 En ef hann lætur sér ekki segjast við orð þín, skaltu fara til hans á og með þér einn eða tvo til viðbótar til staðfesta mál þitt. 17 Ef honum verður ekki þokað þrátt fyrir það, skaltu láta taka málið upp í söfnuðinum. Ef úrskurður safnaðarins verður þér í vil, en bróðir þinn vill ekki beygja sig fyrir honum, skal honum vísað úr söfnuðinum. 18 Ég segi ykkur hér með: Hvað sem þið bindið á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þið leysið á jörðu, verður leyst á himnum.

19 Ég segi ykkur einnig verði tveir ykkar sammála um biðja einhvers, mun faðir minn á himnum veita ykkur það. 20 Því hvar sem tveir eða þrír eru samankomnir mín vegna, er ég mitt á meðal þeirra."

Veja também