Pular para o conteúdo
Publicidade

Mateus 18

Dæmisagan um miskunnarlausa þrjótinn

21 Þá kom Pétur til hans og spurði: Herra; hve oft á ég fyrirgefa þeim sem syndgar gegn mér? Sjö sinnum?"

22 Nei, sjötíu sinnum sjö, endalaust!" svaraði Jesús. 23 Himnaríki líkja við konung, sem ákvað gera upp við þá sem skulduðu honum. 24 Meðan á uppgjörinu stóð, var komið með mann sem skuldaði honum margar milljónir. 25 Hann gat ekki borgað, og þá skipaði konungurinn svo fyrir hann, kona hans og börn skyldu seld, ásamt öllum eigum hans, til þess skuldin yrði greidd.

26 Þá varpaði maðurinn sér í gólfið við fætur konungsins og sagði: Ó, herra minn, miskunnaðu mér og ég mun borga þér alla skuldina!"

27 Þá kenndi konungurinn í brjósti um hann og gaf honum upp alla skuldina!

28 Þegar þessi maður kom út frá konunginum, hitti hann félaga sinn sem skuldaði honum smáræði. Hann greip um kverkar honum og skipaði honum greiða alla skuldina tafarlaust. 29 Maðurinn kraup þá við fætur hans og grátbað hann: Veittu mér dálítinn frest og ég mun greiða þér það sem ég skulda."

30 En hinn vildi ekki bíða og lét handtaka skuldunaut sinn og varpa honum í fangelsi, þar varð hann dúsa uns skuldin var fullu greidd.

31 Samstarfsmönnum þeirra brá í brún og þeir fóru til konungsins og sögðu honum hvað gerst hafði. 32 Konungurinn lét þá kalla til sín manninn sem hann hafði gefið upp skuldina og sagði: Miskunnarlausi þrjótur! Ég gaf þér upp milljóna skuld vegna þess þú baðst mig um það. 33 Átt þú ekki vera miskunnsamur við aðra eins og ég var miskunnsamur við þig?"

34 Konungurinn varð reiður og sendi manninn til böðlanna sem skyldu gæta hans uns skuldin yrði fullu greidd. 35 Þannig mun faðir minn á himnum einnig fara við ykkur, ef þið fyrirgefið ekki bræðrum ykkar af heilum hug."

Veja também