Pular para o conteúdo
Publicidade

Matteus 19:16-26

Ríki maðurinn fer sína eigin leið

16 Maður nokkur kom til Jesú og spurði: „Meistari, hvaða góðverk þarf ég að gera til þess að eignast eilíft líf?"

17 „Hvers vegna spyrð þú mig um hið góða?" svaraði Jesús. „Einn er góður og það er Guð. En spurningu þinni skal ég svara. Þú kemst til himins, ef þú hlýðir boðorðunum."

18 „Hverjum?" spurði maðurinn.

„Þessum," svaraði Jesús: „Þú skalt ekki mann deyða, ekki drýgja hór, ekki stela, ekki ljúga, 19 heiðraðu föður þinn og móður og elskaðu meðbróður þinn eins og sjálfan þig!"

20 „Ég hef alltaf hlýtt boðorðunum," sagði ungi maðurinn, „hvað er það fleira sem ég þarf að gera?"

21 Jesús svaraði: „Ef þú vilt verða fullkominn, þá skaltu selja allt sem þú átt, gefa fátækum andvirðið og þá muntu eignast fjársjóð á himnum. Komdu síðan og fylgdu mér." 22 Þegar ungi maðurinn heyrði þetta varð hann dapur og gekk burt – hann var mjög ríkur.

Guði er allt mögulegt

23 Þá sagði Jesús við lærisveinana: „Ríkum manni mun reynast erfitt að komast inn í guðsríki. 24 Ég segi, það er auðveldara fyrir úlfalda að komast gegnum nálarauga en fyrir ríkan mann að komast inn í guðsríki!" 25 Lærisveinarnir urðu forviða og spurðu: „Hver getur þá frelsast?" 26 Jesús leit á þá einbeittur á svip og sagði: „Enginn, fyrir mannlegt tilstilli, en Guði eru allir hlutir mögulegir."

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.