Publicidade

Mateus 19

Hjónaband og hjónaskilnaður

1 lokinni þessari ræðu hélt Jesús af stað frá Galíleu til Júdeu og lagði leið sína um héruðin austan Jórdanar. 2 Mikill fjöldi fylgdi honum og hann læknaði sjúka. 3 Þá komu til hans nokkrir farísear sem vildu ræða við hann og reyna flækja hann í orðum.

Leyfir þú hjónaskilnað?" spurðu þeir.

4 Hafið þið ekki lesið Biblíuna?" spurði hann. Þar stendur í upphafi hafi Guð skapað karl og konu, 5 og sagt karlmaðurinn ætti fara heiman frá foreldrum sínum og búa með eiginkonu sinni upp frá því. 6 Þau tvö eiga verða eitt ekki framar tvö, heldur eitt! Enginn maður aðskilja það sem Guð hefur sameinað."

7 En af hverju sagði þá Móse maðurinn gæti skilið við konu sína með því afhenda henni skilnaðarbréf?" spurðu þeir.

8 Móse leyfði ykkur skilnað vegna illsku ykkar og miskunnarleysis," svaraði Jesús, en það hafði Guð ekki upphaflega áformað. 9 Ég segi: sem skilur við konu sína af annarri ástæðu en þeirri hún hafi verið honum ótrú og kvænist annarri, drýgir hór."

10 Ef svo er," sögðu lærisveinarnir, þá er betra kvænast alls ekki!"

Jesús kennir um einlífi

11 Ég veit ekki geta allir framfylgt þessu," sagði Jesús, aðeins þeir sem hjálp frá Guði. 12 Sumir eru fæddir þannig þeir geta ekki lifað í hjónabandi, aðrir verða þannig af mannavöldum og enn aðrir vilja ekki gifta sig vegna guðsríkisins. sem skilur orð mín ætti fara eftir þeim."

Jesús blessar litlu börnin

13 Fólk færði lítil börn til Jesú og bað hann um leggja hendur yfir þau og biðja fyrir þeim. Lærisveinarnir brugðust illa við þessu og sögðu: Verið ekki ónáða hann." 14 En Jesús sagði: Leyfið börnunum koma til mín og bannið þeim það ekki, því slíkra er guðsríki." 15 Og hann lagði hendur sínar á höfuð þeirra, blessaði þau og hélt síðan áfram ferð sinni.

Ríki maðurinn fer sína eigin leið

16 Maður nokkur kom til Jesú og spurði: Meistari, hvaða góðverk þarf ég gera til þess eignast eilíft líf?"

17 Hvers vegna spyrð þú mig um hið góða?" svaraði Jesús. Einn er góður og það er Guð. En spurningu þinni skal ég svara. Þú kemst til himins, ef þú hlýðir boðorðunum."

18 Hverjum?" spurði maðurinn.

Þessum," svaraði Jesús: Þú skalt ekki mann deyða, ekki drýgja hór, ekki stela, ekki ljúga, 19 heiðraðu föður þinn og móður og elskaðu meðbróður þinn eins og sjálfan þig!"

20 Ég hef alltaf hlýtt boðorðunum," sagði ungi maðurinn, hvað er það fleira sem ég þarf gera?"

21 Jesús svaraði: Ef þú vilt verða fullkominn, þá skaltu selja allt sem þú átt, gefa fátækum andvirðið og þá muntu eignast fjársjóð á himnum. Komdu síðan og fylgdu mér." 22 Þegar ungi maðurinn heyrði þetta varð hann dapur og gekk burt hann var mjög ríkur.

Guði er allt mögulegt

23 Þá sagði Jesús við lærisveinana: Ríkum manni mun reynast erfitt komast inn í guðsríki. 24 Ég segi, það er auðveldara fyrir úlfalda komast gegnum nálarauga en fyrir ríkan mann komast inn í guðsríki!" 25 Lærisveinarnir urðu forviða og spurðu: Hver getur þá frelsast?" 26 Jesús leit á þá einbeittur á svip og sagði: Enginn, fyrir mannlegt tilstilli, en Guði eru allir hlutir mögulegir."

27 En við sem yfirgáfum allt og fylgdum þér," sagði Pétur, hvað berum við úr býtum?"

28 Jesús svaraði: Þegar ég, Kristur, sest í hið dýrlega hásæti mitt í guðsríkinu, munuð þið sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels. 29 Hver sem yfirgefur heimili, bræður, systur, föður, móður, eiginkonu, börn eða eignir til geta fylgt mér, mun hundraðfalt í staðinn og eignast eilíft líf. 30 Margir þeirra, sem eru fremstir, verða þá síðastir og hinir síðustu fremstir."

Veja também

Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-07-05_19-25-13-