Pular para o conteúdo
Publicidade

Mateus 2

Jesús fæðist

1 Jesús fæddist í bænum Betlehem í Júdeu á valdatímum Heródesar konungs. Um það leyti komu stjörnufræðingar til Jerúsalem frá Austurlöndum og spurðu:

2 Hvar er nýfæddi Gyðingakonungurinn? Við höfum séð stjörnu hans austur í löndum og erum við komnir til þess sýna honum lotningu."

3 Heródes konungur varð óttasleginn er hann heyrði þetta, og alls kyns sögusagnir komust á kreik í Jerúsalem. 4 Heródes kallaði því saman trúarleiðtoga Gyðinga og spurði:

Hafa spámennirnir sagt hvar Kristur eigi fæðast?"

5 ," svöruðu leiðtogarnir, í Betlehem, því þannig skrifaði Míka spámaður: 6 Þú Betlehem litla, þú ert ekki einhver þýðingarlaus smábær í Júdeu, því frá þér mun koma höfðingi sem annast þjóð mína, Ísrael"."

7 Heródes sendi þá stjörnufræðingunum leynileg boð um finna sig, og á þeim fundi fékk hann vita hvenær þeir hefðu fyrst séð stjörnuna. Síðan sagði hann:

8 Farið til Betlehem og leitið barninu, og þegar þið hafið fundið það, skuluð þið koma aftur og láta mig vita hvar það er, svo ég geti einnig veitt því lotningu!"

9 þessum viðræðum loknum héldu stjörnufræðingarnir aftur af stað. Og sjá! Stjarnan birtist þeim á og fór fyrir þeim uns hún staðnæmdist loks yfir Betlehem. 10 Gleði þeirra var takmarkalaus! 11 Þeir gengu inn í húsið þar sem María og barnið voru, krupu á kné frammi fyrir því og tilbáðu það. Síðan tóku þeir upp farangur sinn og gáfu barninu gull, reykelsi og myrru.

12 Á heimleiðinni komu þeir ekki við í Jerúsalem til þess hitta Heródes, því Guð hafði sagt þeim í draumi fara aðra leið.

Veja também