9 Að þessum viðræðum loknum héldu stjörnufræðingarnir aftur af stað. Og sjá! Stjarnan birtist þeim á ný og fór fyrir þeim uns hún staðnæmdist loks yfir Betlehem. 10 Gleði þeirra var takmarkalaus! 11 Þeir gengu inn í húsið þar sem María og barnið voru, krupu á kné frammi fyrir því og tilbáðu það. Síðan tóku þeir upp farangur sinn og gáfu barninu gull, reykelsi og myrru.
12 Á heimleiðinni komu þeir ekki við í Jerúsalem til þess að hitta Heródes, því að Guð hafði sagt þeim í draumi að fara aðra leið.