Publicidade

Mateus 2

Jesús fæðist

1 Jesús fæddist í bænum Betlehem í Júdeu á valdatímum Heródesar konungs. Um það leyti komu stjörnufræðingar til Jerúsalem frá Austurlöndum og spurðu:

2 Hvar er nýfæddi Gyðingakonungurinn? Við höfum séð stjörnu hans austur í löndum og erum við komnir til þess sýna honum lotningu."

3 Heródes konungur varð óttasleginn er hann heyrði þetta, og alls kyns sögusagnir komust á kreik í Jerúsalem. 4 Heródes kallaði því saman trúarleiðtoga Gyðinga og spurði:

Hafa spámennirnir sagt hvar Kristur eigi fæðast?"

5 ," svöruðu leiðtogarnir, í Betlehem, því þannig skrifaði Míka spámaður: 6 Þú Betlehem litla, þú ert ekki einhver þýðingarlaus smábær í Júdeu, því frá þér mun koma höfðingi sem annast þjóð mína, Ísrael"."

7 Heródes sendi þá stjörnufræðingunum leynileg boð um finna sig, og á þeim fundi fékk hann vita hvenær þeir hefðu fyrst séð stjörnuna. Síðan sagði hann:

8 Farið til Betlehem og leitið barninu, og þegar þið hafið fundið það, skuluð þið koma aftur og láta mig vita hvar það er, svo ég geti einnig veitt því lotningu!"

9 þessum viðræðum loknum héldu stjörnufræðingarnir aftur af stað. Og sjá! Stjarnan birtist þeim á og fór fyrir þeim uns hún staðnæmdist loks yfir Betlehem. 10 Gleði þeirra var takmarkalaus! 11 Þeir gengu inn í húsið þar sem María og barnið voru, krupu á kné frammi fyrir því og tilbáðu það. Síðan tóku þeir upp farangur sinn og gáfu barninu gull, reykelsi og myrru.

12 Á heimleiðinni komu þeir ekki við í Jerúsalem til þess hitta Heródes, því Guð hafði sagt þeim í draumi fara aðra leið.

Flóttinn til Egyptalands

13 Þegar þeir voru farnir, dreymdi Jósef hann sæi engil frá Drottni sem sagði:

Flýðu til Egyptalands og taktu með þér barnið og móður þess, því Heródes konungur sækist eftir lífi barnsins. Vertu síðan um kyrrt í Egyptalandi þar til ég segi þér snúa heim aftur."

14 Jósef lagði af stað til Egyptalands með barnið og Maríu þessa sömu nótt. 15 Þar dvöldust þau uns Heródes konungur lést, en þá rættust orð spámannsins: Ég kallaði son minn frá Egyptalandi."

Saklausum fórnað

16 Heródes varð æfur af reiði þegar hann komst því stjörnufræðingarnir höfðu brugðist honum og sendi þegar í stað alla hermenn til Betlehem. Hann gaf þeim skipun um drepa alla drengi, tveggja ára og yngri, sem ættu heima þar í nágrenninu. Þetta gerði Heródes vegna þess stjörnufræðingarnir höfðu sagt honum þeir hefðu fyrst séð stjörnuna tveimur árum áður. 17 Jeremía spámaður hafði sagt fyrir um þennan hryllilega verknað Heródesar með þessum orðum: 18 Í Rama kveður við angistarvein og óstöðvandi grátur. Rakel grætur börnin sín. Hún er óhuggandi því þau eru ekki lengur lífs."

19 Eftir dauða Heródesar birtist engill Drottins Jósef í draumi í Egyptalandi og sagði:

20 Rís þú á fætur og farðu aftur til Ísraels með Jesú og móður hans."

21 Hann sneri því þegar í stað aftur til Ísraels með Jesú og móður hans. 22 Á leiðinni frétti hann sér til mikils ótta nýi konungurinn í Júdeu væri Areklás, sonur Heródesar. Þá var hann varaður við í öðrum draumi, fara til Júdeu, og því héldu þau til Galíleu 23 og settust í Nasaret. Þar með rættist þessi spádómur um Krist: Hann mun kallaður Nasarei."

Veja também

Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-07-05_19-25-13-