Pular para o conteúdo
Publicidade

Matteus 21:1-9

Jesús kemur til Jerúsalem

1 Jesús og lærisveinar hans nálguðust nú Jerúsalem. Þegar þeir áttu skammt ófarið til þorpsins Betfage á Olíufjallinu, sendi hann tvo þeirra þangað á undan sér.

2 „Þegar þið komið inn í þorpið, munuð þið finna ösnu bundna og fola hjá henni. Leysið þau og færið mér. 3 Ef einhver spyr hvað þið séuð að gera, skuluð þið svara: „Drottinn þarfnast þeirra," og þá mun spyrjandinn láta ykkur afskiptalausa."

4 Með þessu rættist gamall spádómur sem er svona: 5 „Segið Jerúsalem að konungur hennar sé að koma, auðmjúkur og ríðandi á ösnufola!"

6 Lærisveinarnir tveir gerðu eins og þeim var sagt 7 og komu með ösnuna og folann til Jesú. Þeir lögðu síðan yfirhafnir sínar á folann og Jesús settist á bak. 8 Þá breiddu flestir viðstaddra yfirhafnir sínar á veginn en aðrir skáru greinarnar af trjánum og dreifðu þeim á veginn. 9 Allt fólkið gekk á undan og hrópaði:

„Guð blessi konunginn, son Davíðs! Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins! Drottinn, sendu honum hjálp þína frá himnum."

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.