18 Á leiðinni til Jerúsalem, morguninn eftir, fann hann til svengdar. 19 Þá tók hann eftir fíkjutré, sem stóð rétt við veginn. Hann gekk að trénu til að athuga hvort á því væru nokkrar fíkjur, en svo var ekki, einungis lauf. Þá sagði hann við tréð:
„Upp frá þessu munt þú aldrei bera ávöxt!" Rétt á eftir visnaði tréð. 20 Lærisveinarnir urðu forviða og spurðu:
„Hvernig gat tréð visnað svona fljótt?"
21 „Sannleikurinn er sá," svaraði Jesús, „að ef þið trúið án þess að efast, þá getið þið gert slíka hluti og jafnvel enn meiri. Þið gætuð til dæmis sagt við þetta fjall: „Flyttu þig út í sjó," og það mundi hlýða. 22 Þið getið fengið allt, já allt, sem þið biðjið um – ef þið trúið."