17 Segðu okkur nú, er rétt af okkur að greiða skatt til rómverska ríkisins, eða ekki?" 18 En Jesús skildi bragðið og kallaði:
„Þið hræsnarar! Eruð þið að reyna að leika á mig með lævísum spurningum? 19 Sýnið mér mynt." Þá réttu þeir honum pening. 20 „Af hverjum er myndin á peningnum," spurði hann, „og hvaða nafn er undir myndinni?"
21 „Keisarans," svöruðu þeir.
„Jæja," sagði hann. „Gjaldið þá keisaranum það sem keisarans er, og Guði það sem Guðs er."