Tákn tímanna og endir veraldar
3 Stuttu seinna þegar Jesús sat í hlíð Olíufjallsins gengu lærisveinarnir til hans og spurðu hann um þetta:
„Hvenær verður það og hvaða atburðir verða á undan endurkomu þinni og endi veraldar?"
4 „Látið engan blekkja ykkur," svaraði Jesús, 5 „því margir munu koma og segjast vera Kristur og leiða marga í villu. 6 Þið munuð heyra stríðsfréttir, en þær eru ekki tákn um endurkomu mína. Því að styrjaldir halda áfram eins og verið hefur, en endirinn er ekki þar með kominn.