Publicidade

Mateus 24

Jesús spáir eyðingu musterisins

1 Þegar Jesús gekk út úr helgidóminum langaði lærisveinana hann með sér í skoðunarferð um musterissvæðið. 2 En hann sagði við þá:

Þessar byggingar verða allar lagðar í rúst svo ekki mun standa steinn yfir steini!"

Tákn tímanna og endir veraldar

3 Stuttu seinna þegar Jesús sat í hlíð Olíufjallsins gengu lærisveinarnir til hans og spurðu hann um þetta:

Hvenær verður það og hvaða atburðir verða á undan endurkomu þinni og endi veraldar?"

4 Látið engan blekkja ykkur," svaraði Jesús, 5 því margir munu koma og segjast vera Kristur og leiða marga í villu. 6 Þið munuð heyra stríðsfréttir, en þær eru ekki tákn um endurkomu mína. Því styrjaldir halda áfram eins og verið hefur, en endirinn er ekki þar með kominn. 7 Þjóðir og ríki jarðarinnar munu heyja styrjaldir sín á milli og hungursneyð og jarðskjálftar geisa víða. 8 Þetta er aðeins byrjun hörmunganna sem koma. 9 Þið verðið pyntaðir og líflátnir, og allir munu hata ykkur vegna þess þið tilheyrið mér. 10 Þá munu margir falla frá trúnni, og hata og svíkja hverjir aðra. 11 Margir falsspámenn munu koma og leiða marga í villu. 12 Afbrot aukast er kærleikur flestra kólnar, 13 en sem stöðugur stendur allt til enda mun frelsast.

14 Gleðiboðskapurinn um guðsríki verður fluttur öllum þjóðum heimsins, og þá loks mun endirinn koma."

Þrengingin mikla

15 Þegar þið sjáið viðurstyggð eyðingarinnar, sem Daníel spámaður talaði um, standandi á helgum stað lesandinn athugi það! 16 Þá verða þeir sem eru í Júdeu flýja til fjalla, 17 þeir sem staddir eru á svölunum heima hjá sér, fari þá ekki inn til taka saman föggur sínar áður en þeir flýja. 18 Þeir sem þá verða á ökrum fari ekki heim eftir nauðsynjum. 19 Neyð þeirra sem þá verða barnshafandi eða hafa fyrir ungbörnum sjá, mun verða mikil. 20 Biðjið flótti ykkar verði ekki um vetur eða á helgidegi, 21 því þá verða meiri ofsóknir en nokkru sinni fyrr. 22 Sannleikurinn er yrði þessi tími ekki styttur, myndi allt mannkynið farast, en vegna hinna útvöldu mun tíminn verða styttur. 23 Ef einhver segir þá við þig: Kristur er kominn á þennan eða hinn staðinn," eða hann hefur birst hér eða þar," þá trúið því ekki. 24 Falskristar munu koma fram og einnig falsspámenn, sem gera munu mikil kraftaverk til blekkja fólk, jafnvel þá sem Guð hefur kallað. 25 Munið ég hef varað ykkur við. 26 Ef einhver kemur og segir ykkur Kristur kominn aftur og úti í eyðimörkinni, þá sinnið því ekki og farið ekki þangað. Ef sagt er hann í felum á tilteknum stað, þá trúið því ekki! 27 Ég, Kristur, mun koma jafn óvænt og eldingin sem leiftrar frá austri til vesturs! 28 Reynið skilja tákn tímanna á sama hátt og þið skiljið þar muni hræið vera sem gammarnir safnast."

Koma mannssonarins

29 Eftir þessar ofsóknir mun sólin myrkvast og tunglið hætta lýsa. Stjörnurnar munu hrapa af himni og kraftar alheimsins ganga úr skorðum! 30 Þá mun tákn komu minnar sjást á himninum og allir jarðarbúar skelfast. Þeir munu sjá mig koma í skýjum himinsins með mætti og mikilli dýrð. 31 Þegar lúðurinn hljómar, munu englar mínir safna saman þeim sem ég hef valið, úr öllum áttum, heimshorna á milli."

Dæmið af fíkjutrénu

32 Lærið af fíkjutrénu: Þegar greinar þess eru orðnar mjúkar og laufið fer springa út, þá vitið þið sumarið er í nánd. 33 Eins skuluð þið vita þegar þið sjáið allt þetta, þá er endurkoma mín í nánd, 34 og þá fyrst mun þessi kynslóð líða undir lok."

Enginn veit daginn stundina

35 Himinn og jörð munu hverfa, en mín orð standa eilífu. 36 Enginn veit þann dag eða stund er endirinn verður, hvorki englarnir sonur Guðs, aðeins faðirinn einn. 37,38 Fólk mun almennt taka öllu með eins og allt í lagi það verða veisluhöld, mannfagnaðir og brúðkaup rétt eins og var á dögum Nóa áður en flóðið kom. 39 Menn trúðu ekki orðum Nóa fyrr en flóðið skall á og hreif þá alla burt. Þannig fer einnig við komu mína. 40 Tveir munu vinna á akri, annar verður tekinn en hinn skilinn eftir. 41 Tvær verða við heimilisstörf, önnur verður tekin en hin skilin eftir. 42 Verið viðbúnir! Þið vitið ekki hvaða dag Drottinn kemur. 43 Innbrotsþjófur gerir ekki boð á undan sér, þess vegna verða menn vera á verði. 44 Þess vegna verðið þið vera stöðugt viðbúnir endurkomu minni."

Trúr og ótrúr þjónn

45 Hver er trúr og hygginn þjónn, sem húsbóndinn hefur falið umsjónarstarfið svo allir fái fæðu sína á réttum tíma? 46,47 Sæll er þjónn sem húsbóndinn finnur breytir þannig þegar hann kemur. Víst er hann mun fela honum umsjón með öllu sem hann á. 48 En segi svikull þjónn við sjálfan sig: Húsbóndinn kemur ekki strax," 49 og tekur berja samstarfsmenn sína og stunda veislur og drykkjuskap 50 þá kemur húsbóndi hans honum óvörum 51 og refsar honum sviksemina."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-