Trúr og ótrúr þjónn
45 „Hver er trúr og hygginn þjónn, sem húsbóndinn hefur falið umsjónarstarfið svo að allir fái fæðu sína á réttum tíma? 46,47 Sæll er sá þjónn sem húsbóndinn finnur að breytir þannig þegar hann kemur. Víst er að hann mun fela honum umsjón með öllu sem hann á. 48 En segi svikull þjónn við sjálfan sig: „Húsbóndinn kemur ekki strax," 49 og tekur að berja samstarfsmenn sína og stunda veislur og drykkjuskap 50 þá kemur húsbóndi hans honum að óvörum 51 og refsar honum sviksemina."