Pular para o conteúdo
Publicidade

Matteus 25

Kristur mun dæma þjóðirnar

31 Þegar ég, Kristur, kem aftur í dýrð minni og allir englarnir með mér, mun ég setjast í hástól dýrðarinnar. 32 Þá verður öllum þjóðunum safnað saman frammi fyrir mér og ég mun skilja fólkið , eins og fjárhirðir aðskilur sauðfé og geitur. 33 Kindunum mun ég skipa mér til hægri handar og geitunum til vinstri handar. 34 Þá mun ég, konungurinn, segja við þá til hægri handar: Komið, þið hinir blessuðu föður míns, inn í ríkið sem ykkur hefur verið ætlað frá því heimurinn varð til. 35 Ég var hungraður og þið gáfuð mér borða, þyrstur og þið gáfuð mér drekka. Ég var ókunnugur og þið buðuð mér inn á heimili ykkar. 36 Ég var fatalaus og þið klædduð mig. Ég var sjúkur, og í fangelsi og þið heimsóttuð mig." 37 Þá svara hinir réttlátu og segja: Herra, hvenær sáum við þig hungraðan og gáfum þér borða, þyrstan og gáfum þér drekka, 38 eða ókunnugan og hjálpuðum þér. Hvenær sáum við þig klæðalausan og klæddum þig, 39 og hvenær veikan eða í fangelsi og litum til þín?" 40 Þá mun ég, konungurinn, svara þeim og segja: Þetta sem þið gerðuð bræðrum mínum, gerðuð þið mér." 41 Síðan mun ég snúa mér þeim sem eru til vinstri og segja: Burt með ykkur, bölvaðir, í eilífa eldinn sem ætlaður er djöflinum og þjónum hans. 42 Ég var hungraður, en þið gáfuð mér ekki borða, þyrstur og þið færðuð mér ekkert drekka. 43 Ég var ókunnugur og þið sýnduð mér ekki gestrisni, klæðlaus og þið gáfuð mér enga flík. Ég var veikur og í fangelsi og þið heimsóttuð mig ekki." 44 Þá munu þeir svara: Drottinn, hvenær var það sem við sáum þig hungraðan eða þyrstan, ókunnugan, nakinn, sjúkan eða í fangelsi og hjálpuðum þér ekki?" 45 Þá mun ég svara: Þegar þið neituðuð mínum minnsta bróður um hjálp, þá neituðuð þið mér." 46 Og þeir munu fara burt til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs."

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também