Pular para o conteúdo
Publicidade

Mateus 26

Ráðagerð um svíkja Jesú

1 Þegar Jesús hafði lokið ræðu sinni, sagði hann við lærisveinana:

2 Þið vitið eftir tvo daga koma páskarnir og þá verð ég svikinn og krossfestur." 3 Um svipað leyti héldu prestarnir fund, ásamt öðrum embættismönnum Gyðinga, í höll Kaífasar æðsta prests. 4 Þeir voru bollaleggja hvernig þeir gætu handtekið Jesú svo lítið bæri á og líflátið hann. 5 En ekki á sjálfum páskunum, því þá er svo margt aðkomufólk í borginni og hætt við óeirðum," samþykktu þeir.

Smurningin í Betaníu

6 Jesús fór til Betaníu, heim til Símonar holdsveika. 7 Meðan hann mataðist, kom þangað inn kona sem hélt á flösku með mjög dýrri ilmolíu, og hellti henni yfir höfuð hans.

8,9 Lærisveinarnir urðu gramir og sögðu sín á milli:

Til hvers er þessi sóun? Þetta hefði mátt selja fyrir stórfé og gefa peningana fátækum." 10 Jesús las hugsanir þeirra og sagði:

Hví eruð þið hryggja konuna? Hún gerði góðverk á mér. 11 Þið hafið ávallt fátæka hjá ykkur, en ekki mig. 12 Hún hellti ilmvatni þessu yfir mig til þess búa líkama minn til greftrunar. 13 Hennar mun verða minnst og þess getið sem hún gerði, hvar sem fagnaðarboðskapurinn verður fluttur."

Júdas samþykkir svíkja Jesú

14 Þá fór einn postulanna tólf, Júdas Ískaríot, til æðstu prestanna 15 og spurði:

Hve mikið viljið þið borga mér fyrir koma Jesú í hendur ykkar?" Þeir greiddu honum þrjátíu silfurpeninga. 16 Upp frá því beið Júdas eftir hentugu tækifæri til svíkja Jesú í hendur þeirra.

Jesús heldur páska með lærisveinunum

17 Á fyrsta degi páskahátíðarinnar (Gyðingar fjarlægðu þegar allt súrdeig gerbrauð af heimilum sínum) komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann:

Hvar eigum við undirbúa páskamáltíðina?"

18 Farið inn í borgina," svaraði Jesús, finnið mann nokkurn og segið við hann: Meistari okkar segir: Minn tími er kominn. Hjá þér vil ég halda páska með lærisveinum mínum." "

19 Lærisveinarnir gerðu eins og Jesús sagði og undirbjuggu páskamáltíðina. 20,21 Þetta kvöld, þegar hann var sestur til borðs ásamt lærisveinunum tólf, sagði hann:

Ég veit einn ykkar mun svíkja mig." 22 Hryggð og ótti greip lærisveinana og þeir spurðu hver um sig: Ekki þó ég?" Jesús svaraði:

23 Það er sem ég þjónaði fyrst í kvöld."

24 Ég verð deyja eins og spáð var, en vei þeim manni sem því veldur. Betra væri honum hann hefði aldrei fæðst." 25 Júdas sem varð til þess svíkja hann, spurði líka: Er það ég?" Og Jesús svaraði: ."

Jesús stofnar heilaga kvöldmáltíð

26 Meðan á máltíðinni stóð tók Jesús brauð, blessaði það og braut í sundur, rétti lærisveinunum og sagði:

Takið þetta og neytið, það er líkami minn." 27 Og hann tók bikar með víni, gjörði þakkir, rétti þeim og sagði: Drekkið allir hér af, 28 því þetta er blóð mitt, innsigli nýja sáttmálans. Því er úthellt til syndafyrirgefningar fyrir marga.

Veja também