Bænin í Getsemane
36 Jesús fór síðan með lærisveinana inn í garð sem heitir Getsemane, og bað þá að setjast niður meðan hann færi spölkorn lengra til að biðjast fyrir. 37 Hann fékk með sér þá Pétur og bræðurna Jakob og Jóhannes Sebedeussyni. Mikill ótti og örvænting kom yfir Jesú og hann sagði: 38 „Sál mín er buguð af ótta og angist allt til dauða. Bíðið hér og vakið með mér." 39 Hann gekk lítið eitt lengra, hneig til jarðar og bað: „Faðir minn! Taktu þennan bikar frá mér ef mögulegt er, en verði þó þinn vilji en ekki minn."
40 Síðan kom hann aftur til lærisveinanna þriggja og fann þá sofandi.
„Pétur!" kallaði hann, „gastu ekki einu sinni vakað með mér eina stund? 41 Vakið og biðjið, til þess að þið fallið ekki í freistni. Andinn er fús, en holdið er veikt!" 42 Hann fór frá þeim aftur og bað: „Faðir! Ef ekki er unnt að taka þennan bikar frá mér án þess að ég tæmi hann, þá verði þinn vilji." 43 Síðan sneri hann aftur til þeirra og fann þá enn sofandi, því þeir gátu ekki haldið augunum opnum. 44 Hann yfirgaf þá enn og baðst fyrir í þriðja sinn með sömu orðum. 45 Eftir það fór hann aftur til lærisveinanna og sagði: „Sofið þið enn og hvílist? Stundin er komin! Ég hef verið svikinn í hendur vondra manna. 46 Standið upp, förum! Sjáið! Þarna kemur sá sem svíkur mig."