Júdas hengir sig
3 Þegar Júdasi, þeim er sveik hann, varð ljóst að Jesús hafði verið dæmdur til dauða, iðraðist hann gjörða sinna. Hann fór aftur með peningana til æðstu prestanna og hinna leiðtoganna og sagði:
4 „Ég hef syndgað með því að svíkja saklausan mann."
„Það er þitt mál og þú um það!" svöruðu þeir hranalega. 5 Þá hljóp hann inn í musterið, fleygði peningunum á gólfið, fór síðan burt og hengdi sig.