51 Og í sama bili rofnaði fortjaldið í musterinu í tvennt, – en það huldi hið allra helgasta, – ofan frá og niður úr, jörðin skalf og björgin klofnuðu. 52 Þá opnuðust margar grafir og heilagt fólk, sem þar hafði legið, lifnaði við. 53 Eftir upprisu Jesú fór þetta fólk út úr gröfunum og gekk inn í Jerúsalem og birtist þar mörgum.
54 Þegar foringinn og hermenn hans, sem gættu Jesú, fundu jarðskjálftann og sáu hvað gerðist, greip þá skelfing og þeir hrópuðu:
„Þessi maður hefur áreiðanlega verið sonur Guðs!"