Publicidade

Mateus 3

Jóhannes skírari tekur til starfa

1 Meðan þau bjuggu í Nasaret tók Jóhannes skírari predika í óbyggðum Júdeu. Kjarninn í boðskap hans var þessi:

2 Snúið ykkur frá syndinni og til Guðs, því ríki himnanna er nálægt." 3 Jesaja spámaður sagði þannig fyrir um starf Jóhannesar mörgum öldum áður: Ég heyri hrópað í auðninni: Ryðjið Drottni veg gjörið beinar brautir hans."

4 Klæðnaður Jóhannesar var ofinn úr úlfaldahári, og hann notaði leðurbelti. Hann lifði á engisprettum og villihunangi. 5 Fólk streymdi frá Jerúsalem, allri Júdeu og úr Jórdandalnum til þess hlusta á hann. 6 Þá sem játuðu syndir sínar skírði hann í ánni Jórdan. 7 Margir farísear og saddúkear komu til láta skírast hjá Jóhannesi. Þegar hann þá koma ásakaði hann þá opinberlega og sagði:

Þið höggormssynir! Hver hefur sagt þið gætuð umflúið reiði Guðs? 8 Áður en þið látið skírast verðið þið sýna í verki þið hafið snúið ykkur frá syndinni. 9 Þið skuluð ekki halda þið getið sloppið með því segja: Það er allt í lagi með okkur, við erum Gyðingar afkomendur Abrahams" það er engin trygging í því. Guð gæti breytt grjótinu hérna í Gyðinga, ef hann vildi. 10 þegar hefur öxi Guðs verið reidd til höggs, því dómurinn er skammt undan og hvert það tré sem ekki ber ávöxt verður upp höggvið og brennt í eldi. 11 Þá sem iðrast synda sinna skíri ég í vatni, en sem kemur á eftir mér er mér svo miklu æðri ég er ekki einu sinni verður þess halda á skónum hans! 12 Hann mun skilja hismið frá kjarnanum og safna korninu í hlöðuna en brenna hismið í óslökkvandi eldi."

Skírn Jesú

13 Þá kom Jesús frá Galíleu til árinnar Jórdan til þess skírast hjá Jóhannesi, 14 en Jóhannes færðist undan skíra hann og sagði:

Kemur þú til skírast hjá mér?! Ég þyrfti fremur skírn hjá þér."

15 Láttu þetta samt eftir mér því þá gerum við það sem rétt er," sagði Jesús.

Þá skírði Jóhannes hann. 16 Þegar Jesús steig upp úr vatninu skírninni lokinni, opnuðust himnarnir yfir honum og hann anda Guðs koma niður yfir sig, í dúfulíki, 17 og rödd af himni sagði: Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-