Pular para o conteúdo
Publicidade

Mateus 4

Jesú freistað

1 Eftir þetta leiddi heilagur andi Jesú út í óbyggðina, til þess hans yrði freistað af Satan. 2 Þegar Jesús hafði verið þar matarlaus í fjörutíu sólarhringa var hungrið farið sverfa . 3 Þá reyndi Satan hann til breyta steinum í brauð og sagði:

Ef þú ert sonur Guðs, þá breyttu þessum steinum í brauð."

4 Nei!" svaraði Jesús. Biblían segir fæðan manninum ekki hið eina nauðsynlega heldur það fara eftir orði Guðs."

5 Satan fór þá með hann til Jerúsalem, upp á þak musterisins, og sagði:

6 Ef þú ert sonur Guðs þá kastaðu þér fram af þakbrúninni, því Biblían segir: Guð mun senda engla sína til gæta þín, þeir munu vernda þig svo þú slasist ekki á steinunum fyrir neðan." "

7 , en hún segir einnig enginn skuli leggja heimskulegar þrautir fyrir Drottin, Guð sinn!" svaraði Jesús byrstur.

8 Því næst fór Satan með Jesú upp á hátt fjall og sýndi honum þaðan þjóðir heimsins og alla dýrð þeirra. 9 Allt þetta mun ég gefa þér, ef þú krýpur fyrir mér og tilbiður mig."

10 Burt með þig Satan!" skipaði Jesús. Guðs orð segir: Drottin Guð þinn átt þú tilbiðja og hlýða honum einum." "

11 Þá fór Satan burt, en englar komu og þjónuðu Jesú.

Veja também