Publicidade

Mateus 4

Jesú freistað

1 Eftir þetta leiddi heilagur andi Jesú út í óbyggðina, til þess hans yrði freistað af Satan. 2 Þegar Jesús hafði verið þar matarlaus í fjörutíu sólarhringa var hungrið farið sverfa . 3 Þá reyndi Satan hann til breyta steinum í brauð og sagði:

Ef þú ert sonur Guðs, þá breyttu þessum steinum í brauð."

4 Nei!" svaraði Jesús. Biblían segir fæðan manninum ekki hið eina nauðsynlega heldur það fara eftir orði Guðs."

5 Satan fór þá með hann til Jerúsalem, upp á þak musterisins, og sagði:

6 Ef þú ert sonur Guðs þá kastaðu þér fram af þakbrúninni, því Biblían segir: Guð mun senda engla sína til gæta þín, þeir munu vernda þig svo þú slasist ekki á steinunum fyrir neðan." "

7 , en hún segir einnig enginn skuli leggja heimskulegar þrautir fyrir Drottin, Guð sinn!" svaraði Jesús byrstur.

8 Því næst fór Satan með Jesú upp á hátt fjall og sýndi honum þaðan þjóðir heimsins og alla dýrð þeirra. 9 Allt þetta mun ég gefa þér, ef þú krýpur fyrir mér og tilbiður mig."

10 Burt með þig Satan!" skipaði Jesús. Guðs orð segir: Drottin Guð þinn átt þú tilbiðja og hlýða honum einum." "

11 Þá fór Satan burt, en englar komu og þjónuðu Jesú.

Jesús byrjar predika

12,13 Þegar Jesús frétti Jóhannes hefði verið handtekinn, fór hann norður í Galíleu. Hann fluttist frá Nasaret og settist í Kapernaum, sem er við Galíleuvatnið í héraði Sebúlóns og Naftalí. 14 Þá rættist þessi spádómur Jesaja:

15,16 Í landi Sebúlons og landi Naftalí við vatnið héraðinu handan Jórdan og í Efri-Galíleu þar sem margir útlendingar búa var fólkið í myrkri, en dag einn braust ljósið fram og skein á meðal þess."

17 Upp frá þessu tók Jesús predika:

Snúið ykkur frá syndinni og til Guðs, því ríki himnanna er nálægt."

Köllun fiskimanna

18 Dag einn var hann á gangi við Galíleuvatnið. Þá hitti hann tvo menn á báti við ströndina. Þetta voru Símon, sem kallaður var Pétur, og Andrés bróðir hans. Þeir voru fiskimenn og voru kasta neti í vatnið.

19 Jesús kallaði til þeirra: Komið og fylgið mér, og ég skal kenna ykkur veiða menn!" 20 Þá yfirgáfu þeir netin og fóru með honum.

21 Spölkorn þaðan hann tvo aðra menn við vatnið, Jakob og Jóhannes, sem einnig voru bræður. Þeir sátu þar í báti ásamt Sebedeusi föður sínum og bættu net. Jesús kallaði einnig á þá og 22 þeir stóðu samstundis upp frá vinnunni, skildu föður sinn eftir og fylgdu Jesú.

Jesús læknar marga

23 Jesús ferðaðist um alla Galíleu og talaði í samkomuhúsum Gyðinga (en þar fóru guðþjónustur fram). Hann predikaði gleðiboðskapinn um guðsríki og læknaði hvers konar sjúkdóma og meinsemdir. 24 Fregnir af kraftaverkum hans bárust langt út fyrir Galíleu. Sjúkt fólk kom jafnvel alla leið frá Sýrlandi til lækningu hjá honum. Hann læknaði alla sjúka (sama hver sjúkdómurinn var), einnig geðveika og lamaða, og þá sem haldnir voru illum öndum. 25 Mikill mannfjöldi fylgdi honum hvert sem hann fór fólk frá Galíleu, bæjunum tíu austanvert við Galíleuvatnið, Jerúsalem, Júdeu og jafnvel frá landsvæðinu handan Jórdanar.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-