Köllun fiskimanna
18 Dag einn var hann á gangi við Galíleuvatnið. Þá hitti hann tvo menn á báti við ströndina. Þetta voru Símon, sem kallaður var Pétur, og Andrés bróðir hans. Þeir voru fiskimenn og voru að kasta neti í vatnið.
19 Jesús kallaði til þeirra: „Komið og fylgið mér, og ég skal kenna ykkur að veiða menn!"