Köllun fiskimanna
18 Dag einn var hann á gangi við Galíleuvatnið. Þá hitti hann tvo menn á báti við ströndina. Þetta voru Símon, sem kallaður var Pétur, og Andrés bróðir hans. Þeir voru fiskimenn og voru að kasta neti í vatnið.
19 Jesús kallaði til þeirra: „Komið og fylgið mér, og ég skal kenna ykkur að veiða menn!" 20 Þá yfirgáfu þeir netin og fóru með honum.
21 Spölkorn þaðan sá hann tvo aðra menn við vatnið, Jakob og Jóhannes, sem einnig voru bræður. Þeir sátu þar í báti ásamt Sebedeusi föður sínum og bættu net. Jesús kallaði einnig á þá og 22 þeir stóðu samstundis upp frá vinnunni, skildu föður sinn eftir og fylgdu Jesú.