19 Þar af leiðir að sá sem brýtur hið minnsta boðorð og hvetur aðra til þess að gera hið sama verður minnstur í himnaríki. En sá sem kennir lög Guðs og fer eftir þeim mun verða mikill í himnaríki. 20 Ég vil benda ykkur á eitt: Ef góðverk ykkar verða ekki fremri góðverkum faríseanna og annarra leiðtoga þjóðarinnar, þá komist þið alls ekki inn í guðsríkið.