3 „Sælir eru auðmjúkir, því að þeirra er himnaríki.
4 Sælir eru sorgmæddir, því að þeir munu huggaðir verða.
5 Sælir eru hógværir, því að þeir munu eignast landið.
6 Sælir eru þeir sem þrá réttlætið, því að það mun falla þeim í skaut.
7 Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða.
8 Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu sjá Guð.
9 Sælir eru þeir sem vinna að friði, því að þeir munu kallaðir verða synir Guðs.
10 Sælir eru þeir sem ofsóttir eru fyrir trú sína á mig, því að þeirra er himnaríki.
11 Gleðjist og fagnið þegar fólk talar illa um ykkur, ofsækir ykkur eða ber lognar sakir á ykkur vegna þess að þið fylgið mér, 12 því að mikil laun bíða ykkar á himnum!
Minnist þess að hinir fornu spámenn þoldu einnig ofsóknir.