Elskið óvini ykkar
43 Sagt hefur verið: „Elskaðu vini þína og hataðu óvini þína." 44 En ég segi: Elskið óvini ykkar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja ykkur. 45 Ef þið gerið það, komið þið fram eins og hæfir sonum hins himneska föður. Hann lætur sólina skína jafnt á vonda sem góða. Hann lætur einnig rigna jafnt hjá réttlátum sem ranglátum. 46 Hvaða góðverk er það að elska þá eina sem elska ykkur? Jafnvel skattheimtumennirnir gera það. 47 Eruð þið nokkuð frábrugðin heiðingjunum, ef þið eruð einungis vinir vina ykkar? Nei! 48 Verið því fullkomin eins og ykkar himneski faðir er fullkominn.