Nokkur orð um föstu
16 Fastið ekki þannig að á því beri eins og hræsnararnir. Þeir reyna að sýnast aðframkomnir, svo að fólk finni til með þeim en það eru einu launin sem þeir fá. 17 Verið heldur vel til fara, hreinir og snyrtilegir, 18 svo að engan gruni að þið séuð hungraðir. Faðir ykkar á himnum veit leyndarmálið og hann mun launa ykkur.