2 Látið ekki á því bera, eins og hræsnararnir gera, ef þið gefið einhverjum eitthvað. Þeir láta blása í lúður fyrir sig í samkomuhúsunum og á götuhornunum til þess að fá hrós fyrir góðverk sín! Ég segi ykkur satt: Þeir hafa þegar fengið laun sín.
3 Gætið þess að ekki beri mikið á því þegar þið réttið einhverjum hjálparhönd. Segið vinstri hendinni ekki hvað sú hægri gerir! 4 Faðir ykkar á himnum veit leyndarmálið og mun launa ykkur.