25 Ráðlegging mín er þessi: Hafið engar áhyggjur af mat, drykk, fatnaði eða því um líku. Þið eigið nú þegar líf og líkama, og það er miklu dýrmætara en fæðan og fatnaðurinn. 26 Takið eftir fuglunum. Þeir hafa ekki áhyggjur af því hvað þeir eiga að borða, þeir þurfa hvorki að sá né uppskera né safna í forðabúr, því að faðir ykkar á himnum sér fyrir þeim. Þið eruð miklu dýrmætari en fuglarnir, í hans augum. 27 Haldið þið ef til vill að áhyggjurnar lengi lífið?
Publicidade
Publicidade