Pular para o conteúdo
Publicidade

Mateus 6

Hafið ekki áhyggjur

25 Ráðlegging mín er þessi: Hafið engar áhyggjur af mat, drykk, fatnaði eða því um líku. Þið eigið þegar líf og líkama, og það er miklu dýrmætara en fæðan og fatnaðurinn. 26 Takið eftir fuglunum. Þeir hafa ekki áhyggjur af því hvað þeir eiga borða, þeir þurfa hvorki uppskera safna í forðabúr, því faðir ykkar á himnum sér fyrir þeim. Þið eruð miklu dýrmætari en fuglarnir, í hans augum. 27 Haldið þið ef til vill áhyggjurnar lengi lífið?

28 Hvers vegna hafið þið áhyggjur af fatnaði? Virðið fyrir ykkur blómin sem vaxa á jörðinni. Þau kvíða engu. 29 Salómon, í allri sinni dýrð var þó ekki klæddur slíku skarti sem þau! 30 Skyldi Guð ekki miklu fremur vilja annast ykkur fyrst honum er svona umhugað um blómin, sem standa í dag en eru fallin á morgun! Æ, þið lítiltrúaðir! 31,32 Hafið því engar áhyggjur af fæðu eða fötum! Verið ekki eins og heiðingjarnir sem hugsa ekki um annað. Ykkar himneski faðir veit vel þið þarfnist alls þessa.

33 Sækist fyrst eftir tilheyra honum og gera vilja hans, þá mun allt þetta veitast ykkur auki.

34 Kvíðið ekki morgundeginum því hann er einnig í hendi Guðs. Lifið einn dag í senn.

Veja também