6 Vertu í einrúmi þegar þú biður. Lokaðu dyrunum og bið til föður þíns þannig að enginn viti. Faðir þinn, sem þekkir leyndar hugsanir þínar, mun bænheyra þig. 7,8 Þyljið ekki bænir ykkar í belg og biðu eins og heiðingjarnir. Þeir halda að bænin verði heyrð ef hún er nógu löng og fagurlega orðuð. Minnist þess að faðir ykkar veit nákvæmlega hvers þið þarfnist, jafnvel áður en þið biðjið.
Publicidade