24 Þeir sem hlusta á orð mín og fara eftir þeim, líkjast hyggnum manni sem byggir húsið sitt á klöpp. 25 Þó að rigni og vatnavextir verði, stormurinn æði og lemji húsið, mun það ekki haggast, því það er byggt á traustum grunni.
26 Þeir sem heyrt hafa orð mín, en fara samt ekki eftir þeim, eru heimskir. Þeir eru eins og maður sem byggir húsið sitt á sandi. 27 Og þegar stormurinn blæs og flóðbylgjan kemur æðandi og skellur á því, hrynur það með braki og brestum."