Publicidade

Mateus 9

Jesús fyrirgefur og læknar

1 Jesús steig því aftur út í bátinn og þeir héldu yfir vatnið til Kapernaum, heimabæjar hans. 2 Ekki var liðin löng stund er menn báru lamaðan mann til hans á dýnu. Þegar Jesús trú þeirra sagði hann við veika manninn: Vertu hughraustur, vinur minn. Ég hef fyrirgefið þér syndirnar."

3 Guðlast!" hugsuðu fræðimenn Gyðinganna, sem þarna voru staddir. Þessi maður heldur þó ekki hann Guð?" 4 Jesús vissi hvað þeir hugsuðu og spurði því: Hvers vegna hugsið þið illt? 5,6 Er erfiðara fyrirgefa syndir mannsins en lækna hann?" Síðan sneri hann sér lamaða manninum og sagði: Ég segi við þig, til þess sanna ég hef vald hér á jörðu til þess fyrirgefa syndir: Stattu upp! Taktu dýnuna þína og farðu heim til þín!"

7 Maðurinn spratt á fætur og flýtti sér heim! 8 Ótti greip fólkið þegar það kraftaverkið gerast þannig fyrir augum sér, og það lofaði Guð fyrir hafa gefið manni slíkt vald.

Matteus skattheimtumaður

9 Jesús lagði af stað niður veginn og þá Matteus, skattheimtumann, sitja hjá skattstofunni. Komdu og vertu lærisveinn minn," sagði Jesús við hann. Matteus stóð þegar á fætur og fylgdi honum.

10 Síðar voru Jesús og lærisveinar hans saman í boði (heima hjá Matteusi). Meðal gestanna voru margir sem höfðu illt orð á sér, svo sem alræmdir svindlarar.

11 var faríseunum nóg boðið og þeir spurðu lærisveinana: Hvers vegna umgengst meistari ykkar slíka menn?" 12 Jesús varð fyrir svörum og sagði: Vegna þess heilbrigðir þurfa ekki læknishjálp, heldur hinir sjúku!" 13 Síðan bætti hann við: Farið og reynið skilja þetta biblíuvers: Það eru ekki fórnir ykkar eða gjafir sem ég þrái heldur þið sýnið miskunnsemi." Ég kom til leiða synduga menn til Guðs, en ekki réttláta."

Spurt um föstu

14 Dag einn komu lærisveinar Jóhannesar skírara til Jesú og spurðu: Hvers vegna fasta lærisveinar þínir ekki? Það gerum við og farísearnir líka." 15 Haldið þið vinir brúðgumans séu hryggir og fastandi meðan hann er hjá þeim?" spurði Jesús. því kemur ég verð tekinn frá þeim, og þá þeir nægan tíma til fasta.

16 Hver haldið þið bæti gamla flík með efni sem á eftir hlaupa? Bótin mundi rifna frá og gatið verða enn þá stærra en áður. 17 Og hver notar gamla vínbelgi undir nýtt vín? Gömlu belgirnir láta undan þrýstingnum og springa, vínið fer allt niður og belgirnir eyðileggjast. Nei, við notum nýja belgi undir nýtt vín og þá varðveitist hvort tveggja."

Stúlka rís upp og kona læknast

18 Rétt í þessu bar forstöðumann samkomuhússins. Hann kraup fótum Jesú og sagði: Litla dóttir mín er nýdáin, en þú getur kallað hana aftur til lífsins ef þú vilt koma og snerta hana."

19 Meðan Jesús og lærisveinar hans voru á leið heim til forstöðumannsins, 20 læddist kona sem þjáðst hafði af blæðingum í tólf ár, baki honum og snerti fald yfirhafnar hans. 21 Hún hugsaði: Ef ég aðeins get snert hann, þá mun ég læknast!" 22 Jesús sneri sér við og sagði við hana: Dóttir, vertu ekki kvíðin! Trú þín hefur læknað þig!" Frá þeirri stundu var hún heilbrigð.

23 Þegar Jesús gekk inn í hús forstöðumannsins og alla í uppnámi og heyrði útfarartónlistina, 24 sagði hann: Út með allt þetta fólk! Litla stúlkan er ekki dáin, hún sefur."

Þá hló fólkið og gerði gys orðum hans. 25 Loksins tókst þó koma fólkinu út. Jesús gekk rúmi litlu stúlkunnar og tók í hönd hennar. Við það reis hún upp og varð heilbrigð á sömu stundu! 26 Fréttir af þessu stórkostlega kraftaverki bárust um allt héraðið.

Tveir blindir sýn

27 Tveir blindir menn eltu Jesú þegar hann yfirgaf hús forstöðumannsins og hrópuðu: Sonur Davíðs konungs! Vertu okkur miskunnsamur!" 28 Þeir fóru alla leið inn í húsið þar sem hann dvaldist. Jesús spurði þá: Trúið þið ég geti gefið ykkur sjónina?" , herra", svöruðu þeir, við trúum því."

29 Þá snerti hann augu þeirra og sagði: Verði ykkur trú ykkar." 30 Á sömu stundu fengu þeir sjónina! Jesús bannaði þeim stranglega segja frá þessu, 31 en eigi síður báru þeir söguna um allan bæinn.

32 Þegar Jesús var fara þaðan mætti hann manni sem var mállaus vegna þess illur andi var í honum. 33 Jesús rak illa andann út og þá talaði mállausi maðurinn. Fólkið varð forviða og hrópaði: Aldrei höfum við séð neitt þessu líkt!"

34 En farísearnir sögðu: Hann getur rekið illu andana út af því hann er sjálfur með illan anda. Sjálfur Satan, konungur illu andanna, er í honum!"

Verkamenn kallaðir til starfa

35 Jesús ferðaðist til allra bæja og þorpa á þessum slóðum. 36 Hann kenndi í samkomuhúsum og flutti gleðiboðskapinn um guðsríkið. Hvar sem hann kom læknaði hann fólk af hvers konar sjúkdómum. Hann kenndi í brjósti um mannfjöldann sem til hans kom, því fólkið enga lausn á vanda sínum. Það var eins og hjörð án hirðis. 37 Jesús sagði þá við lærisveina sína: Uppskeran er mikil en verkamennirnir fáir. 38 Biðjið því hann, sem ræður uppskerunni, senda fleiri verkamenn út á akrana."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-