23 Þegar Jesús gekk inn í hús forstöðumannsins og sá alla í uppnámi og heyrði útfarartónlistina, 24 sagði hann: „Út með allt þetta fólk! – Litla stúlkan er ekki dáin, hún sefur."
Þá hló fólkið og gerði gys að orðum hans. 25 Loksins tókst þó að koma fólkinu út. Jesús gekk að rúmi litlu stúlkunnar og tók í hönd hennar. Við það reis hún upp og varð heilbrigð á sömu stundu!