Pular para o conteúdo
Publicidade

Matteus 9:9-13

Matteus skattheimtumaður

9 Jesús lagði nú af stað niður veginn og sá þá Matteus, skattheimtumann, sitja hjá skattstofunni. „Komdu og vertu lærisveinn minn," sagði Jesús við hann. Matteus stóð þegar á fætur og fylgdi honum.

10 Síðar voru Jesús og lærisveinar hans saman í boði (heima hjá Matteusi). Meðal gestanna voru margir sem höfðu illt orð á sér, svo sem alræmdir svindlarar.

11 Nú var faríseunum nóg boðið og þeir spurðu lærisveinana: „Hvers vegna umgengst meistari ykkar slíka menn?" 12 Jesús varð fyrir svörum og sagði: „Vegna þess að heilbrigðir þurfa ekki læknishjálp, heldur hinir sjúku!" 13 Síðan bætti hann við: „Farið og reynið að skilja þetta biblíuvers: „Það eru ekki fórnir ykkar eða gjafir sem ég þrái – heldur að þið sýnið miskunnsemi." Ég kom til að leiða synduga menn til Guðs, en ekki réttláta."

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.