Pular para o conteúdo
Publicidade

Romanos 1

22 Þeir töldu sig ekki þurfa á þekkingu frá Guði halda og urðu því heimskingjar. 23 Í stað þess tilbiðja hinn dýrlega, eilífa Guð, bjuggu þeir sér til goð sem líktust fuglum, ferfætlingum, skriðdýrum og dauðlegum mönnum.

24 Þess vegna hefur Guð gefið þeim lausan tauminn og leyft þeim svala girndum sínum í afskræmdu kynlífi og gera hvað sem þá langaði til, einnig meðhöndla líkama hvers annars á svívirðilegan og viðbjóðslegan hátt. 25 Í stað þess trúa því sem þeir vita er sannleikurinn um Guð, kjósa þeir trúa lyginni! Afleiðingin er þeir tilbiðja það sem Guð hefur skapað, í stað þess tilbiðja Guð, skaparann.

26 Þess vegna hefur Guð ofurselt mennina svívirðilegum girndum. Þeir ganga jafnvel svo langt konurnar snúast gegn eðli sínu og leita kynferðislegrar fullnægju hver með annarri. 27 Sama er segja um karlmennina. Í stað þess hafa eðlileg mök við konurnar, brenna þeir af girnd hver til annars og lifa í skömm hver með öðrum. Af þessu hafa þeir uppskorið þá bölvun sem þeir eiga sannarlega skilið.

Veja também