12 Þetta á jafnt við um Gyðinga og heiðingja. Því að allir hafa þeir sama Drottin, sem gefur öllum sem hann biðja af miklu örlæti af auðæfum sínum, 13 því að hver sem ákallar Drottin mun frelsast.
Gyðingar hafna Guði
14 En hvernig geta menn beðið Drottin um frelsun nema þeir trúi á hann? Og hvernig eiga þeir að trúa, ef þeir hafa ekki heyrt hans getið? Hvernig fá þeir heyrt nema einhver segi þeim frá? 15 Og mun þá nokkur fara til þeirra nema einhver sendi hann? Um þetta segir Gamla testamentið:
„Fagrir eru fætur þeirra sem flytja gleðiboðskapinn góða"
Með öðrum orðum, þeir sem koma og flytja fagnaðarerindi Guðs eru sannarlega góðir gestir.
16 En ekki hafa allir sem heyrt hafa gleðiboðskapinn trúað honum, það sýna þessi orð Jesaja: „Drottinn, hver trúði því sem ég sagði þeim?" 17 Samt er það svo að trúin kemur af því að hlusta á gleðiboðskapinn – gleðiboðskapinn um Krist.